Breytingar á SMS-aðgerðaneti 

Íslandsdeild Amnesty International vill vekja athygli á breytingumn á SMS-aðgerðaneti deildarinnar fyrir viðskiptavini Símans og Hringdu.

Frá og með 1. júní verður lokað fyrir sjálfvirka gjaldfærslu (299 kr. á hvert SMS) fyrir viðskiptavini Símans og Hringdu. Vilji notendur þessara fjarskiptafyrirtækja halda áfram að skrifa undir SMS-mál og samtímis styrkja samtökin þurfa þeir að svara SMS-skilaboðunum í númerið 1900 í hvert skipti með því að skrifa: AKALL

Ef skilaboðunum er ekki svarað verður engin gjaldfærsla í það skipti og viðkomandi skrifar ekki undir málið.

Viðskiptavinir Símans og Hringdu sem vilja styðja áfram starf Amnesty með öðrum hætti er bent á að hægt er að gerast mánaðarlegur styrktaraðili (Vonarljós) undir styrktu starfið.

Einnig er hægt að skrá sig í netákall og fá send í tölvupósti tvö til þrjú mál á mánuði til að skrifa undir, sem hægt er að gera rafrænt og án kostnaðar.

Engar breytingar verða á þjónustu fyrir notendur Nova.