Fréttir
30. september 2020Stjórnvöld á Indlandi frystu nýverið alla bankareikninga Indlandsdeildar Amnesty International og komu þar með í veg fyrir áframhaldandi starfsemi deildarinnar. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem stjórnvöld herja á deildina á síðustu tveimur árum.
Aðför stjórnvalda gegn Indlandsdeild Amnesty International hófst í október 2018 þegar yfirvöld réðust inn á skrifstofu deildarinnar og heimili framkvæmdastjóra til að gera þar leit. Strax í kjölfarið voru bankareikningar deildarinnar frystir með þeim afleiðingum að segja þurfti upp fjölda starfsfólks. Stjórnvöld hófu einnig rógsherferð gegn Amnesty International með því að leka völdum gögnum til fjölmiðla hliðhollum stjórnvöldum.
Nýjasta útspil stjórnvalda átti sér stað þann 10. september 2020 þegar allir bankareikningar voru frystir þar sem deildin var sökuð um peningaþvætti í tengslum við fjáröflun. Þessar ásakanir eiga ekki við rök að styðjast enda hefur deildin fylgt bæði indverskum og alþjóðlegum lögum.
Tilburðir til þöggunar
„Aðgerðir indverskra stjórnvalda eru svívirðilegar og skammarlegar. Afleiðing þeirra er að mannréttindastarf Indlandsdeildar Amnesty International stöðvast í bili. Þetta markar þó ekki endalok baráttu okkar og skuldbindingar fyrir mannréttindum á Indlandi. Unnið er að því að ákvarða hvernig Amnesty International getur haldið áfram að styðja við mannréttindabaráttuna á Indlandi á komandi árum,“
Julia Veerhar, starfandi aðalframkvæmdstjóri Amnesty International.
Indlandsdeild Amnesty International hefur þrýst á indversk stjórnvöld að tryggja gagnsæi og að tekið verði á mannréttindabrotum af hálfu yfirvalda í tengslum við óeirðir í Delhi og Jammu og Kasmír. Viðbrögð stjórnvalda eru tilburðir til þöggunar en þau hafa í auknum mæli brugðist við af hörku til að þagga niður í gagnrýnendum og skapa ótta.
„Amnesty International er stolt af mikilvægu starfi deildarinnar á Indlandi sem hélt starfinu áfram þrátt fyrir hættuna sem samtökin og starfsfólk stóð frammi fyrir. Starfsfólk Amnesty International á Indlandi hefur starfað af reisn þrátt fyrir að hafa þurft að þola grimmilega og skipulagða rógsherferð, skyndiáhlaup rannsóknaraðila, hatramma leka í fjölmiðla og hótanir án nokkurra sannana um glæpsamlegt athæfi. Enda hafa engin lög hafa verið brotin.“
Julia Veerhar, starfandi aðalframkvæmdstjóri Amnesty International.
Amnesty International heldur áfram að kalla eftir því að indversk stjórnvöld hætti að beita hörku gegn mannréttindafrömuðum á Indlandi þrátt fyrir að starf Indlandsdeildar hafi stöðvast og starfsfólk misst vinnuna vegna aðgerða stjórnvalda.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu