Marokkó: Afplánar óréttlátan fangelsisdóm fyrir að nýta tjáningarfrelsi sitt

Marokkóski mannréttindafrömuðurinn og bloggarinn Saida El Alami afplánar nú óréttlátan þriggja ára fangelsisdóm, eingöngu fyrir að nýta rétt sinn til tjáningarfrelsis og friðsamlegra mótmæla.

Þann 1. júlí 2025 handtóku óeinkennisklæddir lögreglumenn Sadiu í Casablanca eftir að hún sýndi frá mótmælum í beinni útsendingu. Mótmælin snéru að andláti manneskju í varðhaldi. Þann 16. september 2025 dæmdi héraðsdómurinn í Ain Sebaa í Casablanca hana í þriggja ára fangelsi og til að greiða 20.000 dínhara sekt (um 270.000 íslenskar krónur). Dóminn hlaut hún fyrir að birta færslur á samfélagsmiðlum og opinberar yfirlýsingar þar sem hún gagnrýndi stjórnvöld og afhjúpaði meinta spillingu og mannréttindabrot. Þann 17. desember 2025 staðfesti áfrýjunardómstóllinn í Casablanca dóminn og refsinguna.

SMS-félagar krefjast þess að marokkósk stjórnvöld leysi Saida El Alami skilyrðislaust úr haldi án tafar og ógildi dóm hennar.