Hanif Pashteen og Noor Ullah Tareen, aðgerðasinnar og meðlimir hreyfingarinnar Pashtun Tahafuz Movement um borgaraleg réttindi, hafa sætt þvinguðu mannshvarfi (leynilegt varðhald yfirvalda) frá 12. nóvember 2025.
Þeir og fimm aðrir voru teknir af lögreglu þegar þeir yfirgáfu samkomu á vegum sveitastjórnarinnar í Peshawar í norðausturhluta Pakistan. Hinum fimm var sleppt tveimur mánuðum síðar.
Ekki er enn vitað um staðsetningu Hanif Pashteen og Noor Ullah Tareen og er óttast um öryggi þeirra og velferð.
SMS-félagar krefjast þess að pakistönsk yfirvöld upplýsi um staðsetningu Hanif Pashteen og Noor Ullah Tareen og tryggi tafarlausa lausn þeirra.

