Umsögn til laga um breytingu á ýmsum lögum til að bæta stöðu kynsegin fólks

Íslandsdeild Amnesty International styður frumvarpið heilshugar. Tryggja þarf að börn og fullorðnir með ódæmigerð líffræðileg kyneinkenni njóti mannréttindaverndar, að börn með ódæmigerð kyneinkenni sæti ekki skaðlegum og ónauðsynlegum inngripum og að trans fólk geti fengið lagalega viðurkenningu á kyni sem byggist á sjálfsákvörðunarrétti. Veita á einstaklingum leyfi til að breyta nafni sínu og kynskráningu lagalega, þar með talið á opinberum gögnum sem útgefin eru af ríkinu, á skjótan, aðgengilegan og gagnsæjan máta og í samræmi við kynvitund einstaklingsins.