Umsögn um frumvarp til laga a um breytingu á almennum hegningarlögum (barnaníðsefni, hatursorðræða, mismunun o.fl.)

Íslandsdeild Amnesty International fagnar frumvarpi þessu og telur þær breytingar sem í því felast tímabærar, einkum þá að við ákvörðun hegningar, sbr. 70. gr. hegningarlaga (hgl.), beri að taka til greina hvort brot megi rekja til nánar tilgreindra atriða er varða brotaþola persónulega og brot þannig af meiði hatursglæpa.