Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum (samfélagsþjónusta ungra brotamanna)

Aukin áhersla á betrun, sáttamiðlun og samfélagsþjónustu sem fullnustuúrræði er kærkomin og mikilvæg fyrir ungt fólk sem hefur misstigið sig og komist í kast við lögin. Telur Amnesty International það ákaflega jákvætt að börn fái að afplána óskilorðsbundna dóma með samfélagsþjónustu. Tilgangurinn með þessu frumvarpi ætti að mati Amnesty International fyrst og fremst að vera sá að reyna að halda ungum brotamönnum frá fangelsi eins og mögulegt er, þ.e. í þeim tilvikum þegar um ítrekaða skilorðsbundna dóma er að ræða eða þegar til stendur að dæma ungan brotamann í óskilorðsbundið fangelsi.