Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á hjúskaparlögum

Amnesty International styður að ríki setji lög um lágmarksaldur til að ganga í hjónaband. Ríki eiga að banna og koma í veg fyrir að einstaklingar séu þvingaðir eða neyddir til að ganga í hjónaband undir öllum kringumstæðum, hvort sem þeir eru börn eða fullorðnir.

Amnesty International telur þó að í einhverjum tilvikum geti réttindum barns verið betur borgið ef leyfðar eru undantekningar á lágmarksaldri til að ganga í hjúskap. Mikilvægt er að fyrir hendi sé einhver heimild til að meta samþykki í tilviki hjónabanda þar sem annar eða báðir aðilar eru undir 18 ára. Er það í samræmi við meginregluna um stigvaxandi rétt barna til að hafa áhrif á eigið líf og taka sjálfstæðar ákvarðanir og meginregluna um það sem er barninu fyrir bestu.