Umsögn um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2025–2029

Íslandsdeild Amnesty International styður áætlunina heilshugar og hvetur til þess að hún verði samþykkt.

Deildin fagnar sérstaklega áætlunum um kynningarefni um samning Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum, sem og að lokið verði við landsáætlun um framkvæmd samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi (Istanbúl-samningsins), ásamt vitundarvakningu. Fræðsla til stofnana, skóla og almennings um ákvæði þessara samninga eykur vitund á réttindum kvenna og skilar sér í betri forvörnum og þolendavænna samfélagi.