Dóminíska lýðveldið: Njósnahugbúnaður í síma þekktrar fjölmiðlakonu
Á alþjóðadegi fjölmiðlafrelsis staðfestir Amnesty International að vel þekkt fjölmiðlakona í Dóminíska lýðveldinu hafi verið skotmark njósnahugbúnaðarins Pegasus frá NSO Group. Þetta er fyrsta staðfesta tilfellið þar í landi. Tæknideild Amnesty International skoðaði síma Nuria Piera og staðfesti að Pegasus-njósnahugbúnaður hefði verið komið fyrir í símann hennar með fullum aðgangi að öllu tækinu á árunum 2020-2021. Piera er rannsóknarfjölmiðlakona sem hefur beint sjónum sínum að spillingu og refsileysi í Dóminíska lýðveldinu á löngum ferli sínum.

