Bandaríkin: Fellið niður ákærur á hendur blaðakonu
Í lok maí 2020 handtók lögreglan í Iowa blaðakonuna Andreu Sahouri í mótmælum Black Lives Matter-hreyfingarinnar þar sem hún var við störf að fjalla um mótmælin. Lögregla spreyjaði piparúða á hana þrátt fyrir að hún hafði ítrekað sagst vera blaðakona. Réttarhöld eiga að byrja í mars.

