Tölur og staðreyndir um dauðarefsinguna árið 2025
2.707 aftökur í 17 löndum árið 2025 að undanskildu Kína, Norður-Kórea og Víetnam.
2.707 aftökur í 17 löndum árið 2025 að undanskildu Kína, Norður-Kórea og Víetnam.
Fjöldi aftaka í heiminum árið 2025 hefur ekki verið meiri frá árinu 1981 en á síðasta ári voru 2.707 einstaklingar teknir af lífi í 17 löndum. Þetta kemur fram í nýútkominni árlegri skýrslu Amnesty International um beitingu dauðarefsingarinnar.
Þeir og fimm aðrir voru teknir af lögreglu þegar þeir yfirgáfu samkomu á vegum sveitastjórnarinnar í Peshawar í norðausturhluta Pakistan. Hinum fimm var sleppt tveimur mánuðum síðar.Ekki er enn vitað um staðsetningu Hanif Pashteen og Noor Ullah Tareen og er óttast um öryggi þeirra og velferð.
Barnaheill – Save the Children á Íslandi og Íslandsdeild Amnesty International eru hluti af alþjóðahreyfingum sem beita sér fyrir vernd mannréttinda á heimsvísu.
Valdboðsstefna færist hratt í aukana um allan heim en hún umbreytir samfélögum með samþjöppun valds, skorti á ábyrgð og skerðingu mannréttinda. Þróunin er sjaldan skyndileg heldur er um hægfara breytingar að ræða, sem setja smám saman skorður á borgaralegt rými, kæfa andóf og draga úr mannréttindum tiltekinna hópa.
Eftir níu mánaða gæsluvarðhald að geðþótta var Said ákærður á fyrsta dómstigi í Badr, vegna trúskipta sinna og trúarskoðana. Fyrsta þinghald í máli hans fór fram 21. apríl 2026 og var málinu frestað til 15. júní 2026. Said er nú í haldi í Ramadan-fangelsinu, þar sem vaxandi áhyggjur eru af heilsu hans.
Skráði mannréttindabrot
Þrátt fyrir að átökin hafi farið minnkandi er þetta enn alvarleg og viðkvæm staða fyrir óbreytta borgara. Bæði vopnahléin eru brothætt og eiga á hættu að rofna, sem setur milljónir einstaklinga í hættu. Bandaríkin og Íran halda áfram hótunum og árásum; í Líbanon halda átökin áfram og fólk er enn á flótta; óbreyttir borgarar í Íran standa frammi fyrir hættu vegna endurtekinna árása og banvænnar kúgunar.
Talið er að hann sé í haldi án ákæru á ótilgreindum, leynilegum varðhaldsstað, án aðgangs að lögfræðingi eða fjölskyldu sinni. Brottnámið virðist tengjast störfum hans sem blaðamaður.
Talið er að hann hafi verið handtekinn af yfirvöldum í Qinghai-héraði í Kína. Síðan þá hafa nánast engar upplýsingar borist um afdrif hans eða hvar hann er niðurkominn.
Heimurinn stendur á barmi þess að nýtt og hættulegt tímabil hefjist þar sem valdamikil ríki, fyrirtæki og hreyfingar sem eru andsnúin réttindum, ráðast á alþjóðasamstarf, alþjóðalög og mannréttindi. Amnesty International varar við þessari þróun í nýútkominni ársskýrslu sinni um stöðu mannréttinda í heiminum. Til að þessi nýja heimsskipan nái ekki fótfestu verða ríki, alþjóðastofnanir og borgaralegt samfélag að hafna undanlátssemi í stjórnmálum til að komast hjá ófriði líkt og gerðist í aðdraganda seinni heimsstyrjaldarinnar.
Frá og með 1. júní verður lokað fyrir sjálfvirka gjaldfærslu (299 kr. á hvert SMS) fyrir viðskiptavini Símans og Hringdu. Vilji notendur þessara fjarskiptafyrirtækja halda áfram að skrifa undir SMS-mál og samtímis styrkja samtökin þurfa þeir að svara SMS-skilaboðunum í númerið 1900 í hvert skipti með því að skrifa: AKALL