Lög Íslandsdeildarinnar 2022
Ný lög voru samþykkt á aðalfundi þann 23. mars. Lögin má sjá hér.
Ný lög voru samþykkt á aðalfundi þann 23. mars. Lögin má sjá hér.
Í ársskýrslu Amnesty International fyrir árið 2021 kemur fram að efnameiri ríki í samvinnu við risafyrirtæki blekktu fólk með innantómum slagorðum og fölskum loforðum um að rísa upp úr kórónuveirufaraldrinum með sanngjörnum hætti. Þetta eru ein stærstu svik okkar tíma. Niðurstöður skýrslunnar eru að þessi ríki ásamt risafyrirtækjum hafi í raun aukið ójöfnuð í heiminum. Þar er greint frá rót vandans sem er meðal annars skaðleg græðgi fyrirtækja og grimmilegir eiginhagsmunir ríkja auk vanræksla stjórnvalda um heim allan er varðar innviði og heilbrigðismál.
Enn og aftur hefur þitt nafn bjargað lífi. Mál samviskufangans Bernardo Caal Xol var hluti af árlegu herferð okkar, Þitt nafn bjargar lífi, árið 2021. Bernando varð frjáls á ný þann 24. mars eftir fjögur ár í fangelsi. Lögfræðingur hans sagði að dómari hefði fyrirskipað lausn hans vegna góðrar hegðunar.
Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International var haldinn í gær, 23. mars. Eins og venja er var ársskýrsla deildarinnar flutt og ársreikningar kynntir sem voru síðan bæði samþykkt á fundinum. Kosið var um lagabreytingu sem var samþykkt.
Idris Hasan, Úígúri sem býr í Tyrklandi, var handtekinn í júlí 2021 í Marokkó vegna þess að hann var eftirlýstur af Interpol. Kínversk yfirvöld skilgreina hann sem hryðjuverkamann vegna starfa sem hann hefur unnið fyrir úígúrísk samtök. Lög í Kína skilgreina hryðjuverk með víðtækum og óljósum hætti og þeim hefur verið beitt til að ofsækja Úígúra og aðra múslimska minnihlutahópa. Þann 15. desember 2021 staðfestu dómstólar í Marokkó framsal Idris Hasan. Hann er enn í varðhaldi og í mikilli hættu að verða framseldur til Kína þar sem hann verður líklega pyndaður og fangelsaður að geðþótta.
Ársskýrsla Íslandsdeildar Amnesty International fyrir árið 2021 er komin út og verður kynnt á aðalfundi í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, miðvikudaginn 23. mars 2021 kl. 17:00.
Árleg herferð Amnesty International, Þitt nafn bjargar lífi, árið 2021 gekk vel en að þessu sinni söfnuðust alls 66.180 undirskriftir vegna tíu mála á aðgerðakort, í sms-aðgerðaneti, netákalli og á vefsíðu herferðarinnar, auk þess sem nokkur hundruð skrifuðu stuðningskveðjur til þolenda og fjölskyldna þeirra.
Almennir borgarar í bænum Izium í austur-Úkraínu upplifa mannúðarhrylling þar sem rússneskar hersveitir varpa sprengjum á bæinn linnulaust. Þetta kemur fram í nýjum gögnum frá Amnesty International.
Nazanin Zaghari-Ratcliffe og Anoosheh Ashoori hafa verið leyst úr haldi í Íran. Þau eru bæði bresk-írönsk og eru komin aftur til Bretlands. Samanlagt voru þau rúm tíu ár í fangelsi eftir óréttmæta handtöku. Amnesty International fagnar þessum fréttum þótt fyrr hefði verið.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir á Norrænu ungliðaráðstefnuna sem í ár verður haldin í Finnlandi. Umsóknarfrestur er til 2. maí, 2022.Norræna ungliðaráðstefnan, Nordic Youth Conference, er árleg ráðstefna fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24 ára frá Finnlandi, Noregi, Danmörk, Íslandi og Færeyjum. Ár hvert hittast um fimmtíu ungliðar og læra um mannréttindi og aðgerðastarf. Í ár verður ráðstefnan haldin í Tuusula í Finnlandi, sem er í nágrenni Helsinki, dagana 27. júní til 1. júlí.
Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International verður haldinn miðvikudaginn 23. mars 2022 kl. 17 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð. Einnig verður honum streymt.
Amnesty International telur innrás Rússlands í Úkraínu greinilegt brot gegn sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þetta er árás á yfirráðasvæði sjálfstæðs ríkis og er glæpur samkvæmt alþjóðalögum. Samtökin kalla eftir því að allir hlutaðeigandi verði dregnir til ábyrgðar fyrir aðild sína í innrásinni og þá glæpi sem hafa verið framdir í kjölfar hennar.