Opið fyrir umsóknir á Nordic Youth Conference 2019
Ert þú á aldrinum 16-24 ára og hefur áhuga á að leggja mannréttindabaráttunni lið?
Ert þú á aldrinum 16-24 ára og hefur áhuga á að leggja mannréttindabaráttunni lið?
Í niðurstöðum nýrrar skýrslu Amnesty International, No Shame in Diversity: The right to health for people with variations of sex characteristics in Iceland, kemur fram að þegar einstaklingar með ódæmigerð líffræðileg kyneinkenni og fjölskyldur þeirra leita eftir þjónustu í íslenska heilbrigðiskerfinu þá dregur skortur á skýru mannréttindamiðuðu verklagi og þverfaglegri nálgun, ásamt ónógum félagslegum stuðningi, úr möguleikum þeirra til að njóta líkamlegrar og andlegrar heilsu að hæsta marki sem unnt er.
Einstaklingar sem fæðast með líffræðileg kyneinkenni sem eru ekki dæmigerð fyrir karlmenn eða konur sæta hindrunum í aðgengi að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Það stofnar líkamlegri og andlegri heilsu þeirra í hættu, að sögn Amnesty International. Sumir einstaklingar með ódæmigerð líffræðileg kyneinkenni fæðast með kyneinkenni sem teljast ekki algjörlega karl- eða kvenkyns, eru sambland af karl- og kvenkyns einkennum, eða eru hvorki karl- né kvenkyns. Margt fólk með ódæmigerð líffræðileg kyneinkenni kýs að kalla sig intersex, aðrir vilja hins vegar ekki nota það hugtak.
Nýr vefur Íslandsdeildar Amnesty International hefur verið tilnefndur til íslensku vefverðlaunanna í flokki samfélagsvefja. Íslensku vefverðlaunin, uppskeruhátíð vefiðnaðarins á Íslandi, verða haldin á vegum Samtaka vefiðnaðarins (SVEF) þann 22. febrúar.
Íbúar fátækrahverfisins The Deep Sea í Naíróbí, höfuðborg, Kenía eiga á ný í hættu á að missa heimili sitt. Þann 1. febrúar tilkynntu yfirvöld að íbúar hefðu aðeins fjóra daga til að rýma svæðið svo hægt væri að ryðja fyrir gerð vegar sem er fjármagnaður af Evrópusambandinu. Ef íbúar yfirgæfu ekki svæðið fyrir þann tíma myndu yfirvöld reka íbúa á brott með valdi.
Hundruð verksmiðjustarfsmanna frá Suður-Filippseyjum hafa tjaldað í Manila frá 27. nóvember síðastliðnum til að mótmæla starfskjörum hjá japönsku verksmiðjunni Sumitomo Fruit Corporation (Sumifru). Starfsmennirnir hafa ítrekað lent í árásum síðan verkfall hófst 1. október 2018. Þá var stéttarfélagi myrtur og kveikt í byggingu stéttarfélagsins auk heimili nokkurra félaga.
Hátt í sjö milljónir einstaklingar studdu starf Amnesty International á síðasta ári og gripu til aðgerða m.a. með mótmælum, skrifum og undirskrift til að verja og styrkja mannréttindi.
Robert Schellenberg, kanadískur ríkisborgari, hlaut dauðadóm í Kína eftir að hafa verið handtekinn fyrir smygl á vímuefnum. Hann var fyrst handtekinn árið 2014 og dæmdur í 15 ára fangelsi af millidómstól í Dalian, Kína, þann 20. nóvember 2018. Schellenberg áfrýjaði og þann 14. janúar 2019 við endurupptöku á málinu, var hann fundinn sekur um enn alvarlegri brot á vímuefnalöggjöf landsins og dæmdur til dauða. Samkvæmt einum af lögfræðingum Schellenberg, Mo Shaoping, er sakfellingin fordæmislaus.
Hinsegin fólk í Tétsníu sætir ofsóknum af skipulögðum árásum af hálfu yfirvalda. Fólk er sett í nauðungarvist og pyndað og að minnsta kosti tveir hafa látist.
Dagana 8. og 9. desember fóru fram heraðgerðir á svæðum þar sem Pemón-frumbyggjar búa í Canaima-þjóðgarðinum. Aðgerðirnar voru í tengslum við stærsta námugröft í Venesúela (Arco Minero del Orinoco, AMO) en yfir 100 þúsund ferkílómetrar af frumskógi hafa verið eyðilagðir. AMO er skilgreint sem mikilvægt þróunarsvæði (National Strategic Development Zone) til að vekja athygli á arðráninu sem þarna á sér stað. Lögð var fram áætlun sem miðar að því að vernda svæðið (Tepuy protection plan) gegn ólöglegum námugreftri. Gefið hefur verið út að aðgerðirnar þann 8. og 9. desember hafi verið framkvæmdar í samráði við Pemón-frumbyggjana, hinsvegar neita þeir að svo hafi verið.
Aðgerðasinnar verða fyrir áreiti, ráðist hefur verið inn á vinnustaði óháðra fréttamiðla og samtökum eins og Amnesty International og Greenpeace er ógnað af yfirvöldum vegna starfa sinna í þágu mannréttinda. Bregðumst við strax!
Skrifstofa Amnesty International lokar yfir hátíðirnar. Við opnum dyrnar aftur á nýju ári, 4. janúar.