Pyndingar
Stjórnvöld og útsendarar þeirra beita pyndingum í skjóli leyndar og refsileysis. Pyndingar eru ómannúðleg refsing sem er beitt af ríkisvaldinu víðs vegar um heiminn í trássi við alþjóðlegt bann.
Stjórnvöld og útsendarar þeirra beita pyndingum í skjóli leyndar og refsileysis. Pyndingar eru ómannúðleg refsing sem er beitt af ríkisvaldinu víðs vegar um heiminn í trássi við alþjóðlegt bann.
Hörmungar og stríð geisa víða um heiminn. Ein afleiðing þessa eru fólksflutningar og flótti þar sem fólk neyðist til að yfirgefa heimili sín.
Ísland beitir einangrunarvist í gæsluvarðhaldi óhóflega og brýtur þannig meðal annars gegn samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu með alvarlegum afleiðingum fyrir sakborninga og rétt þeirra til sanngjarnra réttarhalda.
Hinsegin er regnhlífarhugtak yfir allt það fólk sem er ekki gagnkynhneigt og/eða fellur ekki að viðmiðum samfélagsins um hefðbundið kyn, kynhlutverk, kyntjáningu, kyneinkenni og kynhegðun.
Kynferðisofbeldi er algengt í átökunum í Súdan. 12 milljónir eiga á hættu að verða fyrir kynferðisofbeldi.
Saleh Diab og stórfjölskylda hans, alls 23 einstaklingar og þar af nokkur börn, eiga á hættu að sæta ólögmætum flutningum frá Austur-Jerúsalem. Fjölskyldan hefur staðið í lagalegri baráttu við landtökufólk í áratugi.
Dómari í Bandaríkjunum fyrirskipaði að leysa Mahmoud Khalil úr haldi gegn tryggingu en hann var þrjá mánuði í ólögmætu haldi. Hann er palestínskur aðgerðasinni með ótímabundið dvalarleyfi í Bandaríkjunum og lauk nýlega námi við Columbia-háskólann.
Stjórnarandstæðingarnir og samviskufangarnir José Daniel Ferrer og Félix Navarro voru handteknir að geðþótta á ný þann 29. apríl 2025.
Ríkisstjórn Trump skar snögglega niður erlenda aðstoð Bandaríkjanna. Amnesty International rannsakaði áhrif þessa niðurskurðar á verkefnum víðs vegar um heiminn sem miða meðal annars að því að veita nauðsynlega heilbrigðisþjónustu, tryggja fæðuöryggi, athvarf, heilbrigðisþjónustu og mannúðaraðstoð til fólks í viðkvæmri stöðu. Frá þessu er greint í nýlegri skýrslu Amnesty International, Lives at risk.
Bandarísk stjórnvöld beittu neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þann 4. júní gegn ályktun þar sem krafist er tafarlauss vopnahlés á Gaza, lausnar gísla og tafarlausrar og skilyrðislausrar afléttingar allra takmarkana á mannúðaraðstoð.
Gleðigangan í Búdapest í Ungverjalandi er í hættu. Ný löggjöf í Ungverjalandi tók gildi 15. apríl 2025 en lögunum er hægt að beita til að banna gleðigönguna þar í landi.
Okkar árlega herferð Þitt nafn bjargar lífi gekk vel árið 2024 þrátt fyrir að hún hafi verið minni í umsvifum en undanfarin ár. Á Íslandi söfnuðust 49.038 undirskriftir fyrir öll málin sem var aðeins meira en í fyrra ef miðað er við fjölda mála þar sem málin í ár voru níu en ekki tíu eins og undanfarin ár. Í heildina á heimsvísu var gripið til tæplega 4,7 milljóna aðgerða í 200 löndum og næstum 380 þúsund stuðningskveðjur voru skrifaðar til þolendanna til að sýna þeim stuðning á erfiðum tímum.