Fréttir

12. mars 2025

Filipps­eyjar: Hand­taka Duterte gríð­ar­legt skref fyrir rétt­læti

Rodrigo Duterte, fyrr­ver­andi forseti Filipps­eyja, hefur verið hand­tekinn af filipps­eyskum yfir­völdum í kjölfar hand­töku­skip­unar Alþjóða­saka­mála­dóm­stólsins fyrir glæpi gegn mannúð sem tengjast „stríði hans gegn fíkni­efnum“. 

Fram­kvæmda­stjóri Amnesty Internati­onal, Agnes Callamard, sagði þetta stór­merki­legt skref í átt að rétt­læti, og lagði áherslu á að Duterte leiddi víðtæka herferð þar sem morð á fólki, þar á meðal á börnum, voru vilj­andi, víðtæk og skipu­lögð og samþykkt af ríkinu. 

Agnes hvetur ríkis­stjórn Filipps­eyja til að tryggja að fleiri en Duterte verði látnir sæta ábyrgð og til að vinna að fullu með Alþjóða­saka­mála­dóm­stólnum. Amnesty Internati­onal hvetur einnig til framsals Duterte til Haag og til þess að Filipps­eyjar gerðust aftur aðilar að Rómarsam­þykktinni til að styðja við áfram­hald­andi rann­sóknir. 

„Hand­taka Duterte vegna hand­töku­skip­unar Alþjóða­saka­mála­dóm­stólsins er vonar­ljós fyrir þolendur á Filipps­eyjum og víðar. Hún sýnir að grun­aðir gerendur verstu glæpa, þar á meðal þjóð­ar­leið­togar, geta og munu þurfa að gangast við rétt­læti, hvar sem þeir eru staddir í heim­inum. Á tímum þegar of margar ríkis­stjórnir falla frá skuld­bind­ingum Alþjóða­saka­mála­dóm­stólsins og aðrar ráðast á eða refsa alþjóð­legum dómstólum, er hand­taka Duterte stór stund sem sýnir vald alþjóða­laga.”

Agnes Callamard, Aðal­fram­kvæmda­stjóri Amnesty Internati­onal 

Lestu einnig