Venesúela: Mannréttindi verða að vera leiðarljós í viðbrögðum stjórnvalda við jarðskjálftanum 

Í ljósi jarðskjálftanna sem riðu yfir Venesúela síðdegis þann 24. júní síðastliðinn og þeirrar neyðaraðstoðar sem nú stendur yfir, lýsir Amnesty International yfir þungum áhyggjum af hugsanlegum skelfilegum afleiðingum sem hamfarirnar kunna að hafa fyrir íbúa landsins

Samtökin hvetja stjórnvöld í Venesúela og alþjóðasamfélagið til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að þau sem urðu fyrir áhrifum hamfaranna fái nauðsynlega aðstoð.  

„Við stöndum með öllum þeim sem hafa orðið fyrir beinum eða óbeinum áhrifum hamfaranna. Þær geta nú aukið enn frekar á þá alvarlegu og langvinnu mannréttinda- og mannúðarneyð sem íbúar Venesúela hafa mátt þola í meira en áratug. Heilbrigðiskerfi landsins hefur verið lagt í rúst og kúgun af hálfu stjórnvalda hefur stórlega dregið úr mannréttindavernd.“ 

Agnès Callamard aðalframkvæmdastjóri Amnesty International.  

„Íbúar Venesúela hafa sýnt einstaka seiglu og mikla samstöðu í þessari langvarandi mannréttindaneyð. Brýnt er að styðja þá án tafar nú þegar þeir standa frammi fyrir enn frekari harmleik og tryggja að íbúar verði vanræktir eða beittir óréttlæti.“ 

Amnesty International skorar á stjórnvöld í Venesúela að tryggja að neyðaraðstoð og öll viðbrögð við jarðskjálftunum byggi á alþjóðlegum stöðlum um mannúðaraðstoð og viðbrögð við hamförum, auk þess að vera í samræmi við alþjóðleg mannréttindalög.  

Stjórnvöld í Venesúela hafa birt takmarkaðar upplýsingar, sem ekki hefur verið unnt að sannreyna, um umfang mann- og eignatjóns af völdum jarðskjálftanna. Af þessu tilefni skorar Amnesty International á stjórnvöld í Venesúela að tryggja að upplýsingar um afleiðingar hamfaranna séu birtar tafarlaust, reglulega og með trúverðugum hætti. Það á meðal annars við um umfang tjónsins, fjölda látinna og slasaðra, þær neyðar- og hjálparaðgerðir sem gripið hefur verið til, hvernig þau sem urðu fyrir áhrifum af jarðskjálftunum geta leitað sér aðstoðar, og viðbúnaðaráætlanir um leit að þeim sem er saknað, björgun eftirlifenda og læknisaðstoð fyrir þau sem slösuðust.  

Amnesty International leggur áherslu á að stjórnvöld tryggi rétt allra til lífs, líkamlegrar friðhelgi og frelsis í allri aðstoð við íbúa landsins.  

Aðgangur að upplýsingum, fjölmiðlafrelsi og tjáningarfrelsið hafa verið verulega skert vegna margra ára ritskoðunar af hálfu stjórnvalda. Sú ritskoðun hefur meðal annars falist í lokun fjölda fjölmiðla, lokun á aðgengi að samfélagsmiðlum á borð við X, og því að blaðamenn og mannréttindafrömuðir hafa verið sóttir til saka fyrir störf sín.  

Í ljósi þeirrar mannúðarneyð sem nú ríkir leggur Amnesty International áherslu á að brýnt sé að aflétta öllum óþarfa takmörkunum á starfsemi fjölmiðla, aðgengi að samfélagsmiðlum og öðrum mikilvægum stafrænum samskiptaleiðum. Verði ekki brugðist við án tafar gæti það kostað mannslíf og valdið óafturkræfum skaða á mannréttindi fólks. Mannréttinda- og mannúðarsamtök starfa nú við afar þröngan kost vegna lagaramma sem stjórnvöld hafa komið á og miðar að því að þrengja að borgaralegu rými og þagga niður í hvers kyns gagnrýni eða andófi. Til að unnt sé að bregðast með skilvirkum hætti við neyðarástandinu verða stjórnvöld í Venesúela að fella tafarlaust úr gildi lög gegn frjálsum félagasamtökum (e. Anti-NGO law), auk annarra laga sem takmarka, hafa eftirlit með og hamla lögmætri og nauðsynlegri starfsemi félagasamtaka.  

Amnesty International lýsir jafnframt yfir þungum áhyggjum af fólki sem er í haldi og stöðu þess í kjölfar jarðskjálftanna. Þótt Amnesty International haldi áfram að krefjast tafarlausrar lausnar allra þeirra sem sæta handahófskenndri frelsissviptingu af pólitískum ástæðum, leggja samtökin jafnframt áherslu á að í núverandi neyðarástandi sé brýnt að mannúðar- og mannréttindasamtök, sem og aðstandendur þeirra sem eru í haldi, fái tafarlausan aðgang að öllum varðhaldsstöðvum og öðrum stöðum þar sem fólk er svipt frelsi. Það er nauðsynlegt til að ganga úr skugga um að þau sem eru frelsissvipt séu óhult og tryggja að þau fái nauðsynjar, þar á meðal bráðnauðsynlega heilbrigðisþjónustu.  

Til að bregðast við þessu neyðarástandi þarf tafarlaust að virkja alþjóðlega mannúðaraðstoð og samstöðu, auk þess að efla fjölþjóðlegt samstarf og tryggja að ríki leggi til nauðsynlegt fjármagn og önnur úrræði sem þörf er á.  

Öll ráðstöfun og beiting þessara úrræða verður að vera í samræmi við alþjóðlegar mannúðarreglur og mannréttindalög, einkum meginreglurnar um mannúð, óhlutdrægni, hlutleysi og sjálfstæði.  

Amnesty International skorar á ríki, mannúðarsamtök og styrkveitendur að leggja fram nauðsynlegt fjármagn og önnur úrræði í samstarfi við staðbundin félagasamtök.