Choktrul Dorje Ten Rinpoche, tíbetskur trúar- og menntaleiðtogi, hefur verið saknað síðan í desember 2025.
Talið er að hann hafi verið handtekinn af yfirvöldum í Qinghai-héraði í Kína. Síðan þá hafa nánast engar upplýsingar borist um afdrif hans eða hvar hann er niðurkominn.
SMS félagar Amnesty krefjast þess að yfirvöld gefi tafarlaust upplýsingar um hvar hann er staddur, tryggja að réttindi hans séu virt og láta hann lausan nema fyrir liggi fullnægjandi og trúverðugar sannanir um refsiverðan verknað.

