Fréttir

13. september 2024

Mann­rétt­inda­bar­átta í 50 ár

Íslands­deild Amnesty Internati­onal fagnar því 50 ár eru liðin frá stofnun deild­ar­innar í Norræna húsinu þann 15. sept­ember 1974.  

Rétt eins og aðrar deildir Amnesty Internati­onal hefur Íslands­deildin allt frá stofnun beitt sér fyrir auknum mann­rétt­indum um heim allan, auk þess að stuðla að aukinni þekk­ingu almenn­ings á mann­rétt­indum. Deildin hefur einnig barist fyrir því íslensk lög og fram­kvæmd þeirra séu með þeim hætti að mann­rétt­indi allra hópa sér virt og vernduð í hvívetna. 

Fyrstu árin voru áherslumál deild­ar­innar barátta fyrir lausn samviskufanga og gegn dauðarefs­ing­unni, pynd­ingum og manns­hvörfum. Það má segja að þessi baráttumál hafi verið óumdeil­anleg hér á Íslandi bæði þá og nú.  Vinnulag einkenndist strax af mikilli vand­virkni og rammi var settur um hvernig deildin skyldi vinna að baráttu­mál­unum. Á upphafs­árum Íslands­deild­ar­innar var eitt af megin­mark­miðum alþjóða­sam­tak­anna afnám dauðarefs­ing­ar­innar og nýtti deildin sér að Ísland gæti talað í krafti verkn­aðar. Þannig að strax á fyrstu árum starf­sem­innar var ljóst að Íslands­deildin gat vísað til laga og fram­kvæmdar í eigin landi til þess að sýna öðrum ríkjum jákvætt fordæmi.  

Þakklæti

Auðvitað líta til þess árangurs sem starfið hefur borið, við getum þakkað fyrir fyrir tilstuðlan þrýst­ings frá fólki eins og þér og mér hefur fjöldi samviskufanga um heim allan verið leystur úr haldi, ríkjum sem beita dauðarefs­ing­unni hefur fækkað, réttindi kvenna hafa víða aukist sem og hinsegin fólks þó enn mikið óunnið verk. Amnesty Internati­onal hefur barist ötul­lega fyrir rétt­inum til mótmæla og þó enn á brattann sækja í barátt­unni fyrir því fólk um heim allan geti ótta­laust tjáð skoð­anir sínar með frið­samlegum hætti sem eru í andstöðu við yfir­völd trúi ég því það finni það stendur ekki eitt. Amnesty Internati­onal stendur með þeim. , Amnesty hefur átt þátt í og komið til leiðar jákvæðum breyt­ingum í lífi þolenda mann­rétt­inda­brota og með því lögum og fram­kvæmd breytt hefur líka verið komið í veg fyrir frekari brot. Þ ber sann­ar­lega fagna.

En ég spyr aftur, hvað er það raun­veru­lega sem stendur upp úr í sögu­skoð­un­inni?   

Það sem kemur upp í huga minn er fyrst og fremst þakk­læti til allra þeirra sem hafa lagt deildinni og mannréttinda­bar­átt­unni lið með einum eða öðrum hætti allt f upphafi, sumt jafnvel áratugum saman.

Þetta er fólkið sem hefur mætt og skrifað bréf til yfirvalda, lk sem pakkaði jólakortum ár eftir ár sem fóru svo í sölu til fjáröflunar fyrir deildina, fólk sem hefur haldið viðburði víða um land í herferðinni sem nú kallast Þitt nafn bjargar lífi (áður Bréfamaraþon), fólkið sem hefur setið í stjórn deildarinnar og lagt línurnar, fyrrum aðgerðahópar og ungliðar sem mæta og la á skilti, koma m skapandi hugmyndir gerðum og ta í hvaða veðri sem er til ta í sér heyra til að vekja athygli á brotum hér heima eða erlendis, velviljaðir einstaklingar sem hafa skotið skjólshúsi yfir deildina þegar hún var á hrakhólum og hafði lítið á milli handanna, listamenn, fyrirtæki og lk sem vill veita okkur betri kjör en ella til þess að styðja deildina til áframhaldandi verka.

Svo er það auðvit grunnur okkar, Vonarljósin okkar sem styðja við deildina með reglulegum styrkjum ár eftir ár og þau sem greiða stakan styrk og þegar allt þetta kemur saman myndast ákveðinn kraftur og seigla  sem gerir okkur kleift sinna því starfi sem okkur ber.

Síðast en ekki síst vil ég minnast á það starfsfólk sem hefur gengið til liðs v deildina til lengri eða skemmri tíma, sem hefur allt á sinn einstaka hátt lagt deildinni lið með metnað, elju og trú á málstaðinn rétt eins og allir aðrir og gert þ að verkum deildin hefur stækkað, blómstrað og haldið í þá áratugagömlu vandvirkni sem lagt var af stað m í upphafi til þess að tryggja trúverðugleika og heilindi deildarinnar og samtakanna allra.  

Afmælisfögnuður

Á þessum tíma­mótum vill núverandi stjórn og starfs­fólk þakka ykkur sem stutt hafa við deildina og fyrir gera hana því sem hún er í dag. Við þökkum fyrir þann árangur sem við höfum náð saman og því bjóðum við ykkur til afmæl­is­veislu um helgina 13.-15. september.

Ókeypis er á alla viðburðina og þeir opnir almenn­ingi. Við hlökkum til sjá ykkur.

Kær kveðja, Anna Lúðvíks­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Íslands­deildar Amnesty Internati­onal.

Lestu einnig