Fréttir
19. september 2019Kumi Naidoo, aðalframkvæmdastjóri Amnesty International, hefur biðlað til 30 þúsund skóla víðsvegar í heiminum að nemendum verði leyft að taka þátt í loftslagsverkföllum sem eru án fordæmis og verða haldin 20. og 27. september. Opið bréf var sent til skólayfirvalda í ýmsum löndum, þar á meðal Ástralíu, Kanada, Ungverjalandi, Spáni, Nýja-Sjálandi og Bretlandi.
„Ég trúi að málstaðurinn sem börnin eru að berjast fyrir sé það mikilvægur að ég skrifa ykkur í dag til að óska eftir að nemendur verði ekki hindraðir eða þeim refsað fyrir að taka þátt í alþjóðlegu verkfalli dagana 20. og 27. september.“
„Neyðarástand í loftslagsmálum er eitt helsta mannréttindamál þessarar kynslóðar. Afleiðingarnar munu móta líf þeirra á alla hugsanlega vegu. Aðgerðaleysi stjórnvalda, í ljósi yfirgnæfandi vísindalegra sannana, gæti orðið að einu stærsta mannréttindabroti sögunnar sem nær til margra kynslóða.“
Ungir aðgerðasinnar frá 115 löndum standa fyrir mótmælum gegn loftslagsbreytingum dagana 20. og 27. september en aðaldagurinn er föstudaginn 20. september. Rúmlega 2.400 viðburðir eru fyrirhugaðir í 1000 borgum um heim allan.
Í bréfi Kumi Naidoos eru kennarar beðnir að hafa í huga að með þátttöku í verkfallinu eru börnin að nýta rétt sinn til tjáningarfrelsis, friðsamlegra fundarhalda og að hafa áhrif á ákvarðanir og málefni sem snerta líf þeirra.
Kumi deildi einnig persónulegri reynslu sinni af því að vera rekinn úr skóla 15 ára gamall fyrir að skipuleggja mótmæli gegn aðskilnaðarstefnunni í skóla sínum í Durban í Suður-Afríku.
„Það bakslag varð til þess að ég varð enn ákveðnari í að læra og til allra hamingju gat ég lokið námi mínu og síðar varð ég þess heiðurs aðnjótandi að vera í því hlutverki sem ég er í dag. En það er líka annað sem ég hafði sem börn af þessari kynslóð hafa ekki, það er möguleikann til ímynda sér framtíðina án þess að neyðarástand í loftslagmálum skyggi á.“
“Þessi reynsla mín varð einnig til þess að styrkja mig enn frekar í þeirri trú að það eigi ekki að refsa börnum fyrir að tala um eitt stærsta óréttlæti okkar tíma. Það hefur í raun og veru fallið í hendur unga fólksins að sýna forystu sem margir fullorðnir í valdastöðu hafa ekki sýnt. Það á ekki að efast um hegðun unga fólksins heldur frekar okkar eigin.“
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu