Viltu vinna að betri heimi? Íslandsdeild Amnesty International leitar að sumarstarfsfólki til að sinna fjáröflunar- og kynningarstarfi fyrir samtökin í sumar.
Mannréttindasamtökin Amnesty International leita að starfsfólki til að sinna fjáröflunar- og kynningarstarfi fyrir samtökin í sumar. Starfið felst í því að kynna starfsemi Amnesty International og bjóða fólki að gerast félagar. Oftast er unnið utandyra og vinnutími er frá 11 – 18.
Hæfniskröfur:
Mjög góð samskiptahæfni og framkoma.
Samviskusemi og áreiðanleiki.
Reynsla af sölumennsku er kostur.
Áhugi á mannréttindum er kostur.
Einnig leitum við að verkefnastjóra yfir sumarstarfinu.
Verk- og ábyrgðarsvið:
• Skipulagning og yfirumsjón með starfi götukynna
• Dagleg samskipti og stuðningur við götukynna
• Skráningar og uppgjör
• Önnur tilfallandi störfHæfniskröfur
• Menntun sem nýtist eða reynsla af sambærilegum störfum
• Mikil skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
• Reynsla og þekking á sölu- og markaðsmálum er kostur
• Góð tölvukunnátta
• Mjög góð færni í íslensku og ensku
• Hæfni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
• Brennandi áhugi á mannréttindum
Upplýsingar gefur Sonja Huld Guðjónsdóttir, fjáröflunarstjóri á shg@amnesty.is.

