Í aðdraganda ofangreindrar lagasetningar sendi Íslandsdeild Amnesty International allsherjar- og menntamálanefnd umsögn um fyrirhugaðar breytingar á útlendingalögum. Í henni sagði m.a. að með því að heimila skerðingu á grunnþjónustu er varðar fæði, húsnæði og nauðsynlega heilbrigðisþjónustu er hætt við því að alvarleg vandamál skapist og velferð fólks sé stefnt í hættu.
Mikilvægt er að tryggja að einstaklingar fái notið mannréttinda sinna að fullu þegar fyrir liggur framkvæmdarhæf ákvörðun í málum þeirra sérstaklega í ljósi þess að slík ákvörðun komi oft ekki til framkvæmda svo mánuðum skiptir. Sá sem bíður endursendingar nýtur þá hvorki réttar til almennrar félagsþjónustu né hefur hér atvinnurétt nema að ströngum skilyrðum uppfylltum.
Nú hefur komið í ljós, líkt og fyrirséð var, að skerðing eða niðurfelling á þjónustu er varðar grunnvelferð fólks felur í sér alvarleg vandamál þar sem fólki er ekki tryggð lágmarks framfærsla né réttur til húsnæðis á nokkurn hátt.

