Umsögn um áform um frumvarp til laga um öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn

Frelsissvipting felur ávallt í sér alvarlegt inngrip í líf einstaklings og hefur víðtæk áhrif á mannréttindi hans. Ströng skilyrði gilda um það hvenær heimilt sé að svipta einstakling frelsi sínu og er ákvæði þar að lútandi að finna bæði í stjórnarskrá og almennum lögum sem og helstu mannréttindasáttmálum sem Ísland er aðili að. Í því samhengi er vert að vekja sérstaka athygli á b-lið 1. mgr. 14. gr. Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) þar sem skýlaust bann er lagt við fötlun sé nýtt til að réttlæta frelsissviptingu.

Samtökin gjaldi varhuga við öryggisvistunum enda sé hætt við að einstaklingar sem sæti slíkum úrræðum njóti ekki sömu réttarfarsverndar og sakborningar og sagan sýni að slík úrræði hafi ítrekað verið misnotuð.