Umsögn um áform um heildstæða stefnumótun fullnustumála (Grænbók)

Íslandsdeild Amnesty International fagnar áformum dómsmálaráðuneytisins um heildstæða stefnumótun fullnustumála og því að stefnt séð að hún verði unnin í víðtæku samráði.

Íslandsdeild Amnesty International vekur athygli verkefnastjórnar Grænbókar á hjálagðri skýrslu samtakanna, „Waking up to nothing: Harmful and unjustified use of pre-trial solitary confinement in Iceland“ sem gefin var út þann 31. janúar 2023.Þar kemur m.a. fram að Ísland beitir einangrunarvist í gæsluvarðhaldi óhóflega og brýtur þannig gegn samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu með alvarlegum afleiðingum fyrir sakborninga og rétt þeirra til sanngjarnra réttarhalda.

Skorað hefur verið á íslensk stjórnvöld að skuldbinda sig til að koma á mikilvægum og lagalegum umbótum tafarlaust.