Umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögreglulögum

Barnaheill – Save the Children á Íslandi og Íslandsdeild Amnesty International eru hluti af alþjóðahreyfingum sem beita sér fyrir vernd mannréttinda á heimsvísu.

Ein stærsta áskorun í starfinu á alþjóðavísu er hversu mikið hefur þrengt að réttindum fólks á flótta á undanförnum árum, á sama tíma og fjöldi flóttafólks hefur aldrei verið meiri. Samtökin hafa tekið til skoðunar frumvarpsdrögin og vilja á þessu stigi gera athugasemdir við tvö ákvæði þar sem lagt er til færa réttindi fólks á flótta til verri vegar.