Umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga

Íslandsdeild Amnesty International gerir alvarlegar athugasemdir við drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga (alþjóðlega vernd) og leggst gegn framlagningu frumvarpsins í óbreyttu formi.

Íslandsdeildin leggst gegn áformuðum breytingum á ákvæðum um kærunefnd útlendingamála.

Íslandsdeildin telur fyrirhuguð áform um afnám talsmannaþjónustu á lægra stjórnsýslustigi fela í sér verulega skerðingu á réttindum og réttaröryggi umsækjenda um alþjóðlega vernd.

Mikilvægt er að umsækjendur um alþjóðlega vernd njóti fullnægjandi lögfræðiaðstoðar á öllum stigum málsmeðferðarinnar enda er slíkt fyrirkomulag til þess fallið að tryggja réttaröryggi, sanngjarna málsmeðferð og raunverulega skilvirkni í málsmeðferð.