Umsögn um drög að tillögu til þingsályktunar í málefnum innflytjenda

Íslandsdeild Amnesty International fagnar framkomnum drögum að þingsályktunartillögu í málefnum innflytjenda. Gríðarlegar breytingar eiga sér stað jafnt og þétt í málaflokki um innflytjendur og flóttafólk. Því er mikilvægt að þróa innviði í takt við þær. Deildin fagnar þeim skrefum sem tekin eru til þess að bæta úr aðstæðum innflytjenda og flóttafólks hér á landi og að þeim verði tryggð lögbundin mannréttindi.

Deildin fagnar því einnig að áhersla virðist lögð á að flóttafólk fái nauðsynlega aðstoð til virkrar þátttöku í samfélaginu, hvort sem er á vinnumarkaði, til náms eða á öðrum sviðum. Leggja verður áherslu á aukinn stuðning og jafna þjónustu við flóttafólk.