Íslandsdeild Amnesty International hvetur stjórnvöld til að gæta þess að notkun stafrænnar tækni til að hafa eftirlit með einstaklingum og íbúum sé í samræmi við alþjóðalög um mannréttindi. Tæknin getur og ætti að gegna mikilvægu hlutverki í aðgerðum ríkja til að bjarga mannslífum og hlúa að öryggi borgara. Auknar heimildir ríkisins til eftirlits getur þó ógnað friðhelgi einkalífs, tjáningarfrelsi og félagafrelsi á þann hátt að það getur brotið á mannréttindum og rýrt traust til yfirvalda og þannig jafnvel grafið undan áhrifum viðbragða af hálfu yfirvalda er varða öryggi almennings. Slíkar ráðstafanir hafa einnig í för með sér hættu á mismunun og geta skaðað jaðarsetta hópa umfram aðra hópa.

