Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögreglulögum

Íslandsdeild Amnesty International vísar til umsagnarbeiðni frá nefndasviði Alþingis vegna frumvarps til laga um breytingu á lögreglulögum, nr. 90/1996, með síðari breytingum (afbrotavarnir, vopnaburður og eftirlit með lögreglu) sem barst deildinni hinn 23. febrúar sl. Deildin skilaði inn umsögn um sambærilegt frumvarp sem lagt var fyrir þingið á seinasta löggjafarþingi með ábendingum sem hún ítrekar nú.