Þær breytingar sem lagðar eru til á lögum um atvinnuréttindi útlendinga mæla fyrir um að þeir umsækjendur sem fái dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eða á grundvelli sérstakra tengsla við landið séu undanþegnir frá kröfu um tímabundið atvinnuleyfi hér á landi.
Samkvæmt greinargerð frumvarpsins er átt við að þeir einstaklingar sem fái dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, til dæmis vegna þess að þeir uppfylla ekki skilyrði þess að fá alþjóðlega vernd, þurfi ekki að sækja um atvinnuleyfi sérstaklega heldur verði þeim heimilt að vinna þegar þeir hafa fengið dvalarleyfi. Með breytingunum er komið í veg fyrir hindranir sem hafa takmarkað aðgengi þessara einstaklinga að vinnumarkaði í núverandi ferli. Í greinargerðinni kemur fram að breytingarnar hafi verið óumdeildar þegar þær hafa verið lagðar til áður en þá sem hluti af frumvarpi dómsmálaráðherra um breytingu á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga.

