Íslandsdeild Amnesty International hefur áhyggjur af fleiri ákvæðum frumvarpsins en sér sér ekki fært að koma þeim ítarlega til skila að svo stöddu sökum skamms tímafrests sem gefinn var. Sem dæmi má nefna að frumvarpið gerir strangari kröfu m.a. um rétt einstaklinga til að fá mál sitt endurskoðað í samanburði við hin Norðurlöndin, þ.m.t. Svíþjóð. Þykir því ástæða til að hafa verulegar áhyggjur af þróun virðingar fyrir mannréttindum umsækjenda um alþjóðlega vernd á Íslandi.
Deildin minnir þó á að íslenskum stjórnvöldum ber að tryggja að lög séu í samræmi við alþjóðlega mannréttindasamninga, svo sem mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna, samning Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg félagsleg og menningarleg réttindi, sem Ísland hefur fullgilt, auk Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Mannréttindasáttmála Evrópu sem báðir hafa verið lögfestir hér á landi.

