Íslandsdeild Amnesty International fagnar framkomnu frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga (afnám þjónustusviptingar).
Mikilvægt er að tryggja að einstaklingar fái notið mannréttinda sinna að fullu þegar fyrir liggur framkvæmdarhæf ákvörðun í málum þeirra sérstaklega í ljósi þess að slík ákvörðun komi oft ekki til framkvæmda svo mánuðum skiptir. Sá sem bíður endursendingar nýtur þá hvorki réttar til almennrar félagsþjónustu né hefur hér atvinnurétt nema að ströngum skilyrðum uppfylltum.

