Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga

Deildin vill nota þetta tækifæri til að lýsa yfir þungum áhyggjum af þeim breytingum sem boðaðar eru í frumvarpinu og mótmæla því að enn eigi að höggva í grunnstoðir þeirrar löggjafar sem sett var árið 2016 eftir þverpólitíska og faglega vinnu.

Breytingarnar sem hafa verið gerðar og á að gera með þessu frumvarpi bæta í engu við þá löggjöf en er aðeins ætlað að meitla í burt réttindi þeirra allra viðkvæmustu sem hingað leita eftir vernd. Þá mótmælir deildin því sérstaklega að þetta sé gert í nafni sparnaðar.