Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögreglulögum

Barnaheill – Save the Children á Íslandi og Íslandsdeild Amnesty International eru hluti af alþjóðahreyfingum sem beita sér fyrir vernd mannréttinda á heimsvísu.

Ein stærsta áskorun í starfinu á alþjóðavísu er hversu mikið hefur þrengt að réttindum fólks á flótta á undanförnum árum, á sama tíma og fjöldi flóttafólks hefur aldrei verið meiri. Samtökin telja frumvarpið skerða réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd, þar á meðal barna sem sótt hafa um alþjóðlega vernd. Í ljósi þess að um er að ræða einn jaðarsettasta og viðkvæmasta hóp samfélagsins hvetja Barnaheill og Íslandsdeild Amnesty til þess að réttarvernd umsækjenda um alþjóðlega vernd sé styrkt í frumvarpinu og vilja sérstaklega gera athugasemdir við tvö ákvæði frumvarpsins þar sem lagt er til færa réttindi fólks á flótta til verri vegar.