Íslandsdeild Amnesty International vísar til erindis nefndasviðs Alþingis, dags. 19. september 2024, þar sem deildinni var gefið tækifæri á að gefa allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga (afnám þjónustusviptingar). Deildin fagnar frumvarpinu og ítrekar fyrri afstöðu og athugasemdir þegar samhljóma frumvarp hefur verið lagt fram á Alþingi.
Sú þjónustusvipting sem komið var á með lögum nr. 14/2023 í mars 2023 í 8. mgr. 33. gr. laga um útlendinga kom til framkvæmda með fyrirséðum alvarlegum afleiðingum fyrir hóp umsækjenda um alþjóðlega vernd. Líkt og bent var á af hálfu fjölmargra félagasamtaka í umsögnum og umræðum um ofangreinda þjónustusviptingu, stenst ákvæðið ekki alþjóðlegar skuldbindingar Íslands á sviði mannréttinda.

