Samtökin hafa mótmælt notkun allra handahófskenndra vopna, svo sem jarðsprengja og klasasprengja. Kjarnorkuvopn falla undir þá skilgreiningu en slík vopn þyrma engum sem fyrir þeim eða geislum frá þeim verður. Íslandsdeild Amnesty International fagnar því framkomnu frumvarpi sem hefur það m.a. að markmiði að gera allt íslenskt yfirráðasvæði kjarnorkuvopnalaust og að stuðla að afvopnun og friði af Íslands hálfu.

