Frumvarpið gerir ráð fyrir að fyrrgreindur samningur verði lögfestur, en hann var fullgiltur hér á landi í desember 2016. Alþjóðasamningur hefur ekki bein réttaráhrif á Íslandi fyrr en hann hefur verið lögfestur. Lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks yrði mikil réttarbót og myndi tryggja með lögum þau réttindi sem samningurinn kveður á um. Markmið samnings er, líkt og í greinargerðinni segir, að “efla, verja og tryggja full og jöfn mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk til jafns við aðra, jafnframt því að efla og vinna að virðingu fyrir eðlislægri mannlegri reisn þess”.

