Ítrekun á fyrri umsögn Íslandsdeildar Amnesty International sem send var 20. ágúst 2025 um frumvarp til laga um öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn þskj. 439, 313. mál.
Frelsissvipting felur ávallt í sér alvarlegt inngrip í líf einstaklings og hefur víðtæk áhrif á mannréttindi hans. Ströng skilyrði gilda um það hvenær heimilt sé að svipta einstakling frelsi sínu og er ákvæði þar að lútandi að finna bæði í stjórnarskrá og almennum lögum sem og helstu mannréttindasáttmálum sem Ísland er aðili að.

