Umsögn um reglugerð um breytingu á reglugerð um útlendinga

Í fyrsta lagi tekur deildin heilshugar undir öll þau sjónarmið Mannréttindaskrifstofu Íslands sem koma fram í umsögn hennar um reglugerðardrögin. Breytingarnar sem um er að ræða eru að mestu leyti teknar orðrétt upp úr lögskýringargögnum sem þegar ber að skoða við túlkun laganna sem reglugerðin byggir á. Þó er nokkrum veigamiklum atriðum úr greinargerð með lögunum sleppt. Virðast tillagðar breytingar því þjóna litlum tilgangi öðrum en þeim að draga úr möguleikum tiltekins hóps á mannúðarleyfi, umfram skýran vilja löggjafans.


Í öðru lagi minnir Íslandsdeild Amnesty International á þær ríku skyldur stjórnvalda að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar og mikilvægi þess að axla ábyrgð og skapa hér góð skilyrði fyrir fólk á flótta.
Íslenskum stjórnvöldum ber að tryggja að lög og reglur séu í samræmi við alþjóðlega mannréttindasamninga, svo sem mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna, samning Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi, sem Ísland hefur fullgilt, auk Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Mannréttindasáttmála Evrópu sem báðir hafa verið lögfestir hér á landi.