Umsögn um reglugerð um breytingu á reglugerð um útlendinga

Íslandsdeild Amnesty International þakkar fyrir boð um að veita umsögn um reglugerð um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 sem birt voru á samráðsgátt stjórnvalda hinn 30. ágúst sl. Deildin gerir nokkrar athugasemdir.

Íslandsdeild Amnesty International gerir athugasemdir við undanþágu um aðkallandi umönnunarsjónarmið vegna óskýrleika og ólögmætis.

Undanþáguskilyrði laganna um inngildingu taka einvörðungu til handhafa dvalarleyfa á grundvelli viðbótarverndar og heimilar að sótt sé um dvalarleyfi fyrir aðstandendur eftir a.m.k. 12 mánuði að fjórum skilyrðum uppfylltum.