Íslandsdeild Amnesty International fagnar framkominni þingsályktunartillögu.
Íslandsdeild Amnesty International styður að íslensk stjórnvöld tryggi víðtækar stefnumótunaraðgerðir til að takast á við undirrætur umburðarleysis meðal annars með því að stuðla að samræðu á milli ólíkra menningarheima, fræðslu um fjölbreytni og fjölhyggju, og eflingu minnihlutahópa til að nýta sér rétt sinn til tjáningarfrelsis.
Íslandsdeild Amnesty International fagnar því að nú skuli stefnt að áætlun sem ýtir undir málefnalega umræðu um hatursorðræðu.

