Umsögn um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda

Íslandsdeild Amnesty International fagnar framkominni þingsályktunartillögu. Í tillögunni eru áform um samræmda þjónustu við fólk með alþjóðlega vernd á Íslandi þar sem lögð er áhersla á andlega heilsu og virka þátttöku í samfélaginu og fræðslu til flóttafólks, umsækjenda um alþjóðlega vernd og fagaðila sem koma að þjónustu við flóttafólk. Þá er áætlað að auka þjónustu við flóttafólk á vinnumarkaði, fræða það um réttindi og skyldur og þar með auka líkur á að komið verði í veg fyrir undirboð á vinnumarkaði og aðra misnotkun.


Gríðarlegar breytingar eiga sér stað jafnt og þétt í þessum málaflokki og er því mikilvægt að þróa innviðina í takt við þær. Deildin fagnar þeim skrefum sem tekin eru til þess að bæta úr aðstæðum innflytjenda og flóttafólks hér á landi og að þeim verði tryggð lögbundin mannréttindi.