Umsögn um tillögu til þingsályktunar um undirritun og fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum

Íslandsdeild Amnesty International fagnar tillögu til þingsályktunar um að Ísland undirriti og fullgildi samning Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum og hvetur til þess að hún verði samþykkt hið fyrsta. Um er að ræða sögulegan samning sem öll lönd ættu að styðja til fulls og koma þannig í veg fyrir frekari þróun, vörslu og notkun kjarnavopna. Undirritun og fullgilding samningsins færir okkur skrefi nær heimi sem er laus við hrylling kjarnorkuvopna.