Leysa þarf palestínskan mannréttindafrömuð úr geðþóttavarðhaldi í Ísrael

Ayman Bani Owda, einnig þekktur sem Ayman Ghrayeb, er palestínskur mannréttindafrömuður og félagsráðgjafi frá bænum Tammoun á hernumda Vesturbakkanum. Hann er fjögurra barna faðir sem hefur verið í geðþóttavarðhaldi á vegum ísraelska hersins frá 17. nóvember 2025. Hann er í haldi fyrir mannréttindastörf sín og er honum haldið í ísraelsku fangelsi sem er ekki á hernumda svæðinu í Palestínu. Það er brot á fjórða Genfarsáttmálanum sem bannar flutninga fanga frá hernumdu svæði. Eins og allir Palestínubúar í haldi fær hann ekki leyfi fyrir heimsóknir frá fjölskyldu. 

Skráði mannréttindabrot

Frá árinu 2007 hefur Ayman starfað í þágu mannréttinda.Hann hefur skrásett mannréttindabrot í Jórdan-dalnum en þarr eiga palestínskir bedúínar og hirðingjasamfélög á hættu að vera þvinguð  á brott vegna herts aðgangs að beitilandi og ofbeldis af hálfu ísraelska hersins og landtökufólks sem fær stuðning frá ríkinu.

Stöðvaður af landtökumönnum

Ayman var handtekinn á leið sinni til að skrásetja brot á mannréttindum hirðingja. Tveir ísraelskir landtökumenn stöðvuðu hann og höfðu samband við ísraelska herinn um að handtaka hann. Hann var handtekinn af öryggismálafulltrúa úr landtökubyggð í grenndinni áður en hann var færður í varðhald lögreglu. Fyrstu tvo dagana var ekki vitað hvar hann var niðurkominn og aðeins eftir stöðugan þrýsting frá lögfræðingi lét ísrelski herinn vita hvar hann var staðsettur.

Geðþóttavarðhald

Ísraelskur herdómstóll staðfesti stjórnsýsluvarðhald yfir Ayman til sex mánaða þann 14. desember án ákæru og sanngjarnrar málsmeðferðar. Ísrael beitir slíku varðhaldi með kerfisbundnum hætti í trássi við alþjóðleg mannréttindalög. Hægt er að framlengja stjórnsýsluvarðhald í sex mánuði í senn en engar takmarkanir eru á því hversu oft má framlengja. Það er því ómögulegt fyrir fólk í haldi að vita hvenær það losnar úr haldi. Sönnunargögnum er einnig haldið leyndum sem þýðir að það getur ekki kært ákvörðunina um varðhaldið. Frá því í október 2023 hafa ísraelsk yfirvöld aukið gífurlega beitingu stjórnsýsluvarðhalds gegn Palestínubúum.

Hvað getur þú gert?

Skrifaðu undir og krefstu þess að Ayman Bani Owda verði skilyrðislaust leystur úr haldi án tafar til að geta sameinast fjölskyldu sinni á ný. Hann er í haldi eingöngu fyrir mannréttindastörf sín.  
Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.