Sigrar á árinu 2018
Hátt í sjö milljónir einstaklingar studdu starf Amnesty International á síðasta ári og gripu til aðgerða m.a. með mótmælum, skrifum og undirskrift til að verja og styrkja mannréttindi.
Hátt í sjö milljónir einstaklingar studdu starf Amnesty International á síðasta ári og gripu til aðgerða m.a. með mótmælum, skrifum og undirskrift til að verja og styrkja mannréttindi.
Í október síðastliðnum réðust indversk stjórnvöld inn á skrifstofur Amnesty International og Greenpeace þar í landi og frystu alla bankareikninga. Af þeim sökum stöðvaðist allt starf í þágu mannréttinda á Indlandi, mikilvægt starf sem meðal annars snýr að því að binda enda á ofbeldi gegn konum, mannréttindafræðslu í gunn- og framhaldsskólum og baráttunni fyrir mannréttindum allra á Indlandi.
„Hér er enn eitt skelfilega dæmið um óhóflega beitingu aflsmunar og skotvopna á óforsvaranlegan hátt. Þetta er brot á alþjóðlegum stöðlum og í sumum tilfellum virðist vera um að ræða morð af ásettu ráði sem telst vera stríðsglæpur,“ segir Philip Luther, yfirmaður rannsóknar-og aðgerðadeildar Miðausturlanda og Norður-Afríku hjá Amnesty International í kjölfar frétta í gær um að tugir Palestínubúa hafi verið myrtir og hundruð særðir af ísraelska hernum í mótmælum við girðinguna sem aðskilur Gasa og Ísrael.
Ný skýrsla frá Amnesty International sýnir fram á að ráðist er gegn tjáningarfrelsinu á Spáni þar sem fólk hefur í auknum mæli orðið fyrir barðinu á harkalegum lögum sem banna upphafningu hryðjuverka eða niðurlægingu fórnarlamba hryðjuverka.
Eskinder Nega, blaðamaður frá Eþíópíu og samviskufangi Amnesty International, var leystur úr haldi í febrúar ásamt 746 öðrum föngum eftir náðun stjórnvalda.