Bandaríkin: Þriðja aftakan árið 2024 yfirvofandi í Alabama-fylki
Taka á Keith Gavin af lífi í Alabama-fylki í Bandaríkjunum þann 18. júlí 2024. Amnesty International krefst þess að að dauðadómurinn verði felldur niður.
Taka á Keith Gavin af lífi í Alabama-fylki í Bandaríkjunum þann 18. júlí 2024. Amnesty International krefst þess að að dauðadómurinn verði felldur niður.
Dauðarefsingin er grimmileg, ómannúðleg og niðurlægjandi refsing. Hún er brot á réttinum til lífs og á ekki að fyrirfinnast í réttarkerfi nútímans. Allir einstaklingar hafa rétt til að lifa, það eru mannréttindi sem gilda um alla, hvort sem þeir eru sekir um glæpi eða ekki.
Frumvarp til fyrstu almennu hegningarlöggjafar Sádi-Arabíu, sem er ekki enn búið að opinbera en var lekið var út, gengur í berhögg við alþjóðlega mannréttindastaðla og afhjúpar hræsnina á bak við loforð krónprinsins Mohammed bin Salman um framfarir og umburðarlyndi í landinu. Þetta kemur fram í skýrslu Amnesty International um stöðu mála í Sádi-Arabíu. Yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa ekki deilt frumvarpinu með frjálsum félagasamtökum til umsagnar en þarlendir lögfræðingar hafa staðfest að frumvarpið sem var lekið út sé ófalsað.
Andófsmaðurinn og rapparinn, Toomaj Salehi, á það á hættu á að vera tekinn af lífi. Dómstóll í Esfahan í Íran dæmdi hann til dauða í apríl síðastliðinn fyrir það eitt að taka þátt í uppreisninni „Konur, Líf, Frelsi “ og birta færslur á samfélagsmiðlum þar sem yfirvöld í Íran voru gagnrýnd.
Fjöldi aftaka rauk upp árið 2023 en á árinu var fjöldi aftaka sá mesti í næstum áratug. Ástæðan er veruleg aukning í Miðausturlöndum. Þetta kemur fram í nýútgefinni skýrslu Amnesty International um beitingu dauðarefsingarinnar á heimsvísu árið 2023. Í heildina fóru fram 1.153 aftökur á árinu að undanskildum þeim aftökum sem áttu sér stað í Kína sem eru taldar skipta þúsundum. Þetta er rúmlega 30% aukning frá árinu 2022.
Aftökur tveggja manna eftir svívirðilega ósanngjörn réttarhöld bera þess merki að írönsk yfirvöld ganga sífellt lengra í grimmd sinni. Mohammad Ghobadlou, 23 ára mótmælandi með þroskahömlun, var tekinn af lífi við dögun þann 23. janúar síðastliðinn í kjölfar leynilegs málaferlis og úrskurðar.
Kúrdinn Reza (Gholamreza) Rasaei er í bráðri hættu á að vera tekinn af lífi vegna máls sem tengist fjöldamótmælunum í Íran sem stóðu yfir milli september og desember árið 2022.
Samkvæmt áætlun á Brent Brewer að vera tekinn af lífi í Texas í Bandaríkjunum þann 9. nóvember 2023. Hann var dæmdur til dauða árið 1991. Dómnum var hnekkt árið 2007 en hann var dæmdur til dauða á ný árið 2009.
Mohammad bin Nasser al-Ghamdi var dæmdur til dauða 9. júlí síðastliðinn í sakamáladómstól Sádi-Arabíu fyrir friðsamlegar aðgerðir á Twitter og Youtube.
Amnesty International og stuðningsfólk okkar hefur átt þátt í að bjarga lífum, breyta lögum og vernda mannréttindi það sem af er árinu 2023. Árangur hefur náðst á ýmsum sviðum. Mannréttindasigrar í loftslagsmálum, tækni, fyrir hinsegin réttindi, réttindi flóttafólks, kvenréttindi, gegn dauðarefsingunni ásamt því að fangar sem hafa verið ranglega fangelsaðir hafa verið leystir úr haldi og stjórnvöld dregin til ábyrgðar.
Mojahed (Abbas) Kourkouri á það á hættu að vera tekinn af lífi. Í byrjun apríl 2023 var tilkynnt að hann hefði verið dæmdur til dauða fyrir „fjandsemi við Guð“, „spillingu á jörðinni“ og „vopnaða uppreisn gegn ríkinu“. Réttarhöld yfir honum voru verulega ósanngjörn og „játningu“ var náð fram með pyndingum.
Aftökur hafa ekki verið fleiri í fimm ár þar sem lönd sem eru þegar alræmd fyrir aftökur fóru offörum, samkvæmt nýjustu skýrslu Amnesty International um dauðarefsinguna. Samtals voru 883 einstaklingar teknir af lífi í 20 löndum árið 2022. Þetta er 53% aukning frá árinu 2021.