Singapúr: Stöðvið ólögmæta aftöku
Tangaraju s/o Suppiah á yfir höfði sér fyrirhugaða aftöku þann 26. apríl 2023 í Singapúr. Tangaraju var dæmdur fyrir sölu á einu kílói af kannabisefni og fékk hann lögbundinn dauðadóm fyrir vímuefnabrot.
Tangaraju s/o Suppiah á yfir höfði sér fyrirhugaða aftöku þann 26. apríl 2023 í Singapúr. Tangaraju var dæmdur fyrir sölu á einu kílói af kannabisefni og fékk hann lögbundinn dauðadóm fyrir vímuefnabrot.
Alls staðar úr heiminum berast okkur neikvæðar fréttar og auðvelt er að fallast hendur. Þó er mikilvægt að halda mannréttindabaráttunni áfram og ekki síður fagna þeim fjölmörgu sigrum sem náðust á árinu 2022. Mannréttindastarf Amnesty International stuðlaði að jákvæðum breytingum á ótal vegu.
Yfirvofandi hætta er á að Hussein Abo al-Kheir verði tekinn af lífi fyrir vímuefnabrot. Gert var hlé á aftökum fyrir vímuefnabrot í janúar 2021 eftir að mannréttindanefnd Sádi-Arabíu tilkynnti um opinbert aftökuhlé á slíkum brotum. Yfirvöld Sádi-Arabíu hafa tekið 20 einstaklinga af lífi fyrir vímuefnabrot frá því aftökur hófust á ný þann 10. nóvember 2022.
Hinsegin baráttukonan Zahra Sedighi-Hamadani, 31 árs, og Elham Choubda, 24 ára, voru dæmdar til dauða fyrir „spillingu á jörðu“. Konurnar eru skotmörk stjórnvalda vegna kynhneigðar sinnar, kynvitundar og stuðnings við hinsegin baráttuna á samfélagsmiðlum.
Benjamin Cole, 57 ára maður á að verða tekinn af lífi 20. október næstkomandi. Hann var dæmdur til dauða 2004 fyrir morð á níu mánaða gamalli dóttur sinni í desember 2002. Hann hefur verið greindur með geðklofa og heilaskaða.
Jaafar Mohammad Sultan og Sadeq Majeed Thamer eiga yfir höfði sér aftökur. Sérstaki sakamáladómstóllinn dæmdi þá til dauða í október 2021 eftir afar ósanngjörn réttarhöld vegna hryðjuverkatengdra ákæra, sem fela í sér smygl á sprengiefni til Sádí-Arabíu og þátttöku í mótmælum gegn stjórnvöldum í Barein. Í apríl 2022 staðfesti hæstiréttur dóminn og aftaka þeirra varð yfirvofandi um leið og konungur fullgildir hann.
Samkvæmt árlegri skýrslu Amnesty International um dauðarefsinguna er það mikið áhyggjuefni að dauðadómum og aftökum hafi fjölgað árið 2021 í ríkjum sem hafa beitt henni mikið hingað til. Þessi ríki héldu uppteknum hætti í kjölfar afnáms takmarkana í tengslum við kórónuveirufaraldurinn.
Stjórnvöld í Singapúr eru reiðubúin að hefja aftökur að nýju eftir tveggja ára hlé vegna kórónuveirufaraldursins. Einstaklingar sem dæmdir hafa verið til dauða í tengslum við vímuefnaglæpi eiga yfir höfði sér aftöku. Dauðadómur vegna vímuefnabrota, sem er lögbundinn í Singapúr, stangast á við alþjóðalög. Hæstiréttur landsins hefur fengið formlega beiðni um að stöðva aftökurnar.
Konum á dauðadeild hefur í mörgum tilfellum verið neitað um réttlæti fyrir líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi sem þær hafa þurft að þola og var undanfari og ástæða glæpsins sem þær voru sakfelldar fyrir. Amnesty International vekur athygli á þessu á alþjóðadegi gegn dauðarefsingunni þann 10. október.
Fanginn Heidar Ghorbani, íranskur kúrdi, á yfir höfði sér aftöku fyrir „vopnaða uppreisn gegn ríkinu” þrátt fyrir ósanngjörn réttarhöld og það að dómurinn yfir honum hafi staðfest að hann hafi aldrei verið vopnaður. Í ágúst 2021 hafnaði hæstiréttur Íran beiðni um endurupptöku. Dómurinn er byggður á þvingaðri játningu.
Samkvæmt árlegri skýrslu Amnesty International um dauðarefsinguna kom kórónuveirufaraldurinn ekki í veg fyrir aftökur í 18 löndum árið 2020. Þrátt fyrir fækkun á heimsvísu voru nokkur lönd sem beittu dauðarefsingunni og fjölguðu jafnvel aftökum á sama tíma og heimurinn einbeitti sér að því að vernda fólk gegn skæðri veiru.
Shagufta Kausar og Shafqat Emmanuel eiga yfir höfði sér aftöku fyrir að senda smáskilaboð á klerk sem túlkuð voru sem guðlast. Skilaboðin komu úr síma skráðum á þeirra nafn en parið hefur neitað allri sök. Þau hafa verið í haldi síðan 2013 og voru dæmd til dauða í apríl 2014. Áfrýjun í málinu átti að fara fyrir dómstól í apríl 2020 en var frestað vegna heimsfaraldursins.