Palestína: Amnesty krefst rannsóknar á mögulegum stríðsglæpum Ísraels
Í mars síðastliðnum var ár liðið frá því að vikuleg mótmæli hófust á Gaza til að kalla eftir því að ólöglegri herkví á Gaza yrði aflétt og palestínsku flóttafólki leyft að snúa aftur á landsvæði sem það var hrakið frá fyrir rúmum 70 árum síðan. Enn eru eru þúsundir óbreyttra borgara enn að takast á við afleiðingar grimmilegra aðgerða Ísraelsríkis, sem hefur ekki enn verið dregið til ábyrgðar.

