Taktu þátt í Þitt nafn bjargar lífi á skrifstofu Amnesty
Þriðjudaginn 10. desember býður Íslandsdeild Amnesty International félaga og gesti velkomna á skrifstofu deildarinnar í Þingholtsstræti 27 til þátttöku í Þitt nafn bjargar lífi.
Þriðjudaginn 10. desember býður Íslandsdeild Amnesty International félaga og gesti velkomna á skrifstofu deildarinnar í Þingholtsstræti 27 til þátttöku í Þitt nafn bjargar lífi.
Saba Kordafshari, 21 árs írönsk baráttukona fyrir mannréttindum, var dæmd í 24 ára fangelsi fyrir friðsamlegt mannréttindastarf sitt, þar á meðal mótmæli gegn írönskum lögum um höfuðslæðu. Hún er samviskufangi sem leysa þarf umsvifalaust úr haldi án skilyrða.
Amnesty International kallar eftir því að alþjóðasamfélagið fordæmi beitingu banvæns ofbeldis af hálfu öryggissveita Írans sem hefur valdið dauða 143 mótmælanda frá því mótmæli hófust 15. nóvember síðastliðinn. Amnesty International telur dauðsföllin jafnvel enn fleiri og fylgist grannt með málum.
Fjöldi fólks lagði leið sína í Hörpu fimmtudaginn 21. nóvember síðastliðinn til að ljá mannréttindabaráttunni nafn sitt og upplifa tilkomumikla gagnvirka ljósainnsetningu sem hönnuð var til að vekja athygli á árlegri, alþjóðlegri herferð Amnesty International. Innsetningin hefur nú verið flutt úr Hörpu í Kringluna.
Umræðan um loftslagsmálin hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum. Rödd Amnesty International hefur verið æ háværari í baráttunni gegn loftslagsbreytingum þar sem afleiðingar þessara breytinga hafa bein áhrif á mannréttindi fólks um allan heim.
Sihan Sergiwa, þingkona og baráttukona fyrir mannréttindum, hvarf sporlaust þann 17. júlí 2019 í Benghazi eftir að vopnaðir menn réðust inn á heimili hennar. Þetta var rétt eftir að hún hafði opinberlega gagnrýnt sjálfskipaðan þjóðarher Líbíu fyrir að hernema borgina Trípolí. Talið er að mennirnir tengist þessum her.
Stærsta mannréttindaherferð heims, Þitt nafn bjargar lífi (áður Bréf til bjargar lífi), stækkar enn með hverju árinu. Herferðin í fyrra var engin undantekning þar sem fjöldi fólks tók þátt og skrifaði undir milljónir bréfa sem breyttu lífi baráttukvenna fyrir mannréttindum í þeim tíu málum sem herferðin beindi sjónum sínum að.
Átján nemendur og einn fræðimaður Tækniháskóla Mið-Austurlanda (METU) í borginni Ankara í Tyrklandi hafa verið ákærðir að taka þátt í Pride-göngu hinsegin fólks á háskólasvæðinu þann 10. maí síðastliðinn. Réttarhöld hefjast 12. nóvember en sumir innan hópsins halda því fram að þeir hafi aðeins fylgst með göngunni en ekki tekið virkan þátt í henni. Enginn á að vera dæmdur fyrir að nýta rétt sinn til tjáningar- og fundafrelsis.
Þann 22. september 2019 handtóku óeinkennisklæddir lögreglumenn mannréttindalögfræðinginn og aðgerðasinnann Mahienour el-Masry þegar hún var að ganga út úr byggingu saksóknara í borginni Alexandríu. Saksóknari yfirheyrði síðan Mahienour el-Masry út af ákærum á hendur henni sem enginn fótur er fyrir, þar á meðal fyrir „að aðstoða hryðjuverkahóp“, og „dreifingu á fölskum fréttum“ í máli sem tengist mótmælum gegn ríkisstjórn Egyptalands sem fram fóru í mars 2019. Saksóknarinn fyrirskipaði 15 daga varðhald yfir henni í Al Qanater kvennafangelsi á meðan að rannsókn stæði yfir.
Í gær, þann 22. október 2019, var hætt við allar málsóknir vegna þungunarrofs. Bresk stjórnvöld eru skyldug að tryggja að reglugerð fyrir öruggt þungunarurof verði tilbúin 31. mars 2020. Það þýðir að felldar verða niður allar ákærur gegn móður sem stóð frammi fyrir fangelsisvist fyrir að kaupa lyf til þungunarrofs handa 15 ára dóttur sinni.
Aðgerðakortin fyrir stærstu, árlegu undirskriftaherferð Amnesty International eru komin í hús og erum við mjög ánægð með útkomuna enda eru þau handhægari og umhverfisvænni en fyrri ár.
Tashpolat Tiyip, fyrrum rektor Háskólans í Xinjiang, var dæmdur til dauða eftir leynileg og óréttlát réttarhöld og stendur nú frammi fyrir yfirvofandi aftöku í Kína. Hann hvarf sporlaust árið 2017 og síðan þá hefur hann verið í varðhaldi af geðþótta. Engar upplýsingar hafa verið gefnar upp um sakargiftir, framvindu málsins né staðsetningu hans.