Góðar fréttir

8. mars 2021

10 sigrar í kven­rétt­inda­bar­átt­unni til að fagna á alþjóð­legum baráttu­degi kvenna

Alþjóð­legur baráttu­dagur kvenna er dagur til fögnuðar.
Þrátt fyrir að heims­far­ald­urinn hafi ýtt undir ójöfnuð og haft gífur­lega neikvæð áhrif á konur, stelpur og hinsegin fólk um allan heim hafa mikil­vægir sigrar í kven­rétt­inda­bar­átt­unni náðst á árinu og því ber að fagna!

Hér eru 10 sigrar frá síðasta ári sem sýna jákvæðar breyt­ingar um heim allan.

  1. Þung­un­arrof lögleitt fram að 14. viku í Argentínu.

Þessi lög munu bjarga lífum. Ein helsta orsök mæðra­dauða í landinu á síðustu árum hefur verið óöruggt þung­un­arrof.

  1. Aðgerða­sinnar í Póllandi börðust gegn strangari lögum um þung­un­arrof.

Fjöldi fólks mótmælti úrskurði stjórn­laga­dóms­stóls sem bannaði þung­un­arrof í nánast öllum tilfellum

  1. Síerra Leóne leyfði þung­uðum stúlkum að mæta í skóla á ný.

Þung­aðar stúlkur höfðu ekki fengið að stunda nám frá árinu 2015 sem skerti mögu­leika þeirra að fram­tíð­ar­starfi.

  1. Lögum í Danmörku var breytt þar sem kynlíf án samþykkis var skil­greint sem nauðgun.

Í desember 2020 var ný löggjöf samþykkt á danska þinginu. Nú er kynlíf án samþykkis skil­greint sem nauðgun.

  1. Fleiri lönd leyfðu hjóna­bönd samkyn­hneigðra.

Kosta Ríka var fyrsta landið í Mið-Ameríku til að leyfa hjóna­bönd samkyn­hneigðra. Á Norður-Írlandi var fyrsta samkyn­hneigða parið leitt í hjóna­band. Lög í Angólu sem banna samkyn­hneigð voru felld úr gildi. Svart­fjalla­land lögleiddi sambúð samkyn­hneigðra og Króatía leyfði samkyn­hneigðum pörum að taka börn í fóstur.

  1. Rétt­indi hinsegin fólks á vinnu­markaði voru viður­kennd í Banda­ríkj­unum.

Hæstiréttur Banda­ríkj­anna úrskurðaði í júní 2020 að hinsegin fólk væri verndað gegn mismunun á vinnu­stað.

  1. Súdan afnam limlest­ingu á kynfærum kvenna.

Í júlí 2020 var limlesting á kynfærum kvenna bönnuð. Sé lögunum fylgt eftir getur það bjargað millj­ónum stúlkna og kvenna frá þessum þján­ingum.

  1. Baráttu­kona í Sádi-Arabíu var leyst úr haldi.

Loujain-al-Hathloul, ein þekkt­asta baráttu­kona Sádi-Arabíu, var leyst úr haldi eftir næstum þrjú ár í fang­elsi.

  1. Túrskattur afnuminn á Bret­land.

Túrvörur voru áður skil­greindar sem lúxusvara í Bretlandi. Evrópu­sam­bandið er að vinna í að gera slíkt hið sama. Í Skotlandi eru túrvörur nú ókeypis fyrir alla.

  1. Mótmæli gegn kynbundu ofbeldi voru háværari en nokkru sinni fyrr.

Konur víða um heim kröfðust verndar frá ofbeldi.  Mótmæl­endur í Namibíu náðu að stöðva starf­semi í höfuð­borg­inni í mótmælum út á götu gegn kynbundu ofbeldi og morðum á konum. Í Tyrklandi og Úkraínu fóru stór mótmæli fram þar sem  stjórn­völd voru krafin um að samþykkja Istanbúl-samn­inginn (samning um ofbeldi gegn konum) og kvenna­verk­föll voru víða í Suður-Ameríku til að mótmæla ofbeldi.

Á alþjóð­legum baráttu­degi kvenna 2021 minnist Amnesty Internati­onal þess að fimm ár eru liðin frá því að Berta Cáceres var myrt. Skrifaðu undir ákallið hér.

Lestu einnig